Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson
Útlendingamálin, og þ.m.t. málefni kærunefndar útlendingamála, voru ekki á minni könnu sem utanríkisráðherra Íslands.

Guðlaugur Þór Þórðarson

Undanfarið hefur hugtakið upplýsingaóreiða (e. information disorder) verið mikið til umræðu. Í umdeildum málum og þegar miklir hagsmunir eru í húfi virðist upplýsingaóreiða oft skjóta upp kollinum. Nokkur brögð eru að því að gripið sé til þessa í íslenskum stjórnmálum þótt aðferðin sé útbreiddari í öðrum heimshlutum.

Undanfarið hafa mér borist fyrirspurnir úr mörgum áttum um af hverju ég hafi sem utanríkisráðherra ákveðið að veita Venesúelabúum sérstaka vernd hér á landi. Í fyrstu gerði ég ráð fyrir, og taldi augljóst, að um misskilning væri að ræða enda hafði ég sem utanríkisráðherra ekkert forræði yfir þessum málum og ákvörðunum þeim tengdum. Ég taldi þessa staðreynd máls augljósa og gerði ráð fyrir því að þetta væri öllum ljóst, enda heyra útlendingamál ekki undir utanríkisráðuneytið.

Áfram fékk ég samt fyrirspurnir. Blaðamaður Morgunblaðsins hafði áður haldið þessu fram í þætti Dagmála síðastliðið haust. Steininn tók úr þegar þáttarstjórnandi í Vikulokunum á Ríkisútvarpinu hélt þessu fram fullum fetum án mótmæla eða athugasemda frá viðmælendum í febrúar síðastliðnum. Fullyrðingin kom sömuleiðis fram í vinsælum hlaðvarpsþætti og nú nýlega birtist fullyrðingin á prenti í Viðskiptablaðinu: „Guðlaugur Þór Þórðarson ákvað af einhverjum óskiljanlegum ástæðum að opna landið fyrir fólki frá Venesúela…“

Þessar fullyrðingar eru kolrangar. Útlendingamálin, og þ.m.t. málefni kærunefndar útlendingamála, voru ekki á minni könnu sem utanríkisráðherra Íslands, ekki frekar en málefni Landspítalans eða Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Aðrir ráðherrar báru ábyrgð á málaflokknum.

Þrátt fyrir þessa staðreynd flýgur sagan áfram og upplýsingaóreiðan eykst þar sem einn endurtekur ummæli annars. Það er ekki annað hægt en að velta vöngum yfir því hvort einfaldlega sé um að ræða misskilning eða hvort ásetningur liggi að baki þeirri undarlegu og röngu söguskýringu að utanríkisráðherra beri ábyrgð á ákvörðun sjálfstæðrar stjórnsýslunefndar á málefnasviði dómsmálaráðuneytisins um aukna vernd íbúa Venesúela.

Höfundur er umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Höf.: Guðlaugur Þór Þórðarson