Róður Haukur Eiðsson var ánægður með aflann í fyrsta róðri á Sigrúnu Björk ÞH. Báturinn er gerður út á handfæri og er Haukur einn um borð.
Róður Haukur Eiðsson var ánægður með aflann í fyrsta róðri á Sigrúnu Björk ÞH. Báturinn er gerður út á handfæri og er Haukur einn um borð. — Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Ágætis blíða var þegar nýjasti bátur Húsvíkinga, Sigrún Björk ÞH, lét úr höfn síðastliðinn sunnudag í sína fyrstu veiðiferð. Réri skipstjórinn Haukur Eiðsson út með Tjörnesi og er óhætt að segja að vel hafi fiskast á handfærin

Gunnlaugur Snær Ólafsson

gso@mbl.is

Ágætis blíða var þegar nýjasti bátur Húsvíkinga, Sigrún Björk ÞH, lét úr höfn síðastliðinn sunnudag í sína fyrstu veiðiferð. Réri skipstjórinn Haukur Eiðsson út með Tjörnesi og er óhætt að segja að vel hafi fiskast á handfærin.

Haukur kom til hafnar að mánudagsmorgni með öll kör full. „Ég er búinn að fara einn færaróður og fékk 2,7 tonn af vænum þorski. Þetta var um tíu tíma róður. Þetta var bara gaman, fyrsti færaróðurinn hjá manni og gekk bara mjög vel.“

Hann kveðst ánægður með aflann enda stæðilegur þorskur. „Þetta var bara hrygningarfiskur. Það var ekkert æti, engin loðna hefur gengið hérna inn á flóann, því miður.“

Haukur segir ekkert liggja á spurður hvenær hann haldi til veiða á ný, hann ætli bara að taka þetta í rólegheitunum.

Bara dund

Sigrún Björk ÞH var smíðuð af Víkingbátum í Reykjavík fyrir útgerðina Dodda ehf. sem Haukur rekur ásamt eiginkonu sinni Unni Sigurðardóttur. Um er að ræða bát af gerðinni Sómi 990 og er hann 9,9 metrar að lengd og 7,93 brúttótonn.

Báturinn kom til heimahafnar á Húsavík í fyrsta sinn 4. apríl síðastliðinn en hjónin eru vön útgerð og gerðu um árabil út línubeitningavélbát, síðast Karólínu ÞH sem seld var til Noregs um mitt síðasta ár. „Það er bara verið að hægja á sér, er búinn að vera 20 ár á línunni. Við höfum átt þrjá báta en við hjónin gerum bara út þennan bát núna.“

Um 75 þorskígildistonna kvóti er skráður á bátinn Sigrúnu Björk ÞH. Spurður hvort hann hyggist aðeins róa einn svarar Haukur: „Já, eitthvað að dunda bara. Það er meiningin að gera þetta út frá lokum mars og út september.“

Eru einhver plön um að fara á strandveiðar í sumar?

„Nei, ef maður fer á strandveiðar veit ég ekki hversu mikið það verður.“

Stækkandi þorskur

Það er þó ekki sjálfgefið að gera út á handfæri í íslensku vorveðri og hefur snjóað nokkuð nú í byrjun vikunnar fyrir norðan. Haukur kveðst þó binda vonir við að veðrið fari batnandi á næstunni. „Það er ekki búið að vera gott að stunda grásleppuveiðar, það er búið að vera alveg skelfilegt tíðarfar,“ segir hann en kveðst sjálfur ekki hafa áhuga á að stunda slíkar veiðar.

Borið hefur á óvenjustórum þorski innan 12 mílna í vetur á Austfjörðum og suður með landi. Spurður hvort hann hafi orðið var við slíkt fyrir norðan segir Haukur margt benda til þess að þorskurinn sé orðinn mun stærri en hann var. „Ég hafði ekki farið á sjó í rúmt ár fyrr en núna, en á þessum 20 árum sem ég var á línunni fór meðalþyngdin úr þremur kílóum upp í fimm á þessum svæðum. Við byrjuðum 2003 og frá þeim tíma stækkaði fiskurinn um tvö kíló.“

Sjómaðurinn Guðlaugur Jónasson fullyrti á dögunum í aðsendri grein í Morgunblaðinu að nytjastofnar væru verulega vanmetnir vegna þess að mikið af fiski færi undir troll í togararalli Hafrannsóknastofnunar. Inntur álits á málinu svarar Haukur: „Það er örugglega eitthvað til í því, vinur minn. Þeir geta ekki einu sinni talið það sem er á landi, þannig að ég veit ekki hvernig þeir geta talið það sem er í sjónum. Það held ég að liggi alveg fyrir.“

Höf.: Gunnlaugur Snær Ólafsson