Norður
♠ 987652
♥ 10753
♦ –
♣ 963
Vestur
♠ ÁDG3
♥ 942
♦ 5
♣ ÁKG52
Austur
♠ 10
♥ ÁK
♦ DG1094
♣ D10874
Suður
♠ K4
♥ DG86
♦ ÁK87632
♣ –
Suður spilar 5♦ doblaða.
Eftir spennandi baráttu fóru leikar svo að hin hálfíslenska sveit Vulcanes tapaði fyrir Spadesquad í undanúrslitum Suður-Ameríkumótsins með 20 stiga mun (76-96). Spaðaflokkinn skipuðu tveir Sílebúar, þeir Joaquin Pacareu og Gonzalo Rubio, bandaríska konan Margie Cole og Portúgalinn Antonio Palma.
Vulcanes-sveitin fékk byr í seglin í upphafi leiks þegar Palma flaug með himinskautum upp í 5♦ og var doblaður 2000 niður! Hann opnaði á 1♦, Júlíus Sigurjónsson í vestur doblaði, Cole sagði 1♠ og Gunnlaugur Karlsson 2♣. Palma stökk í 3♦ og sagði svo einhliða 5♦ yfir 5♣ Íslendinganna. „Solo flight of fancy“ var þetta kallað í villugreiningarkerfi bandarísku Ásanna á sínum tíma.
Hinum megin unnu AV 3G með tveimur yfirslögum (460), en það var ekki upp í nös á ketti og Eldfjöllin unnu 17 stig á spilinu.