Jóhann Gunnar Jóhannsson
Jóhann Gunnar Jóhannsson
Jóhann Gunnar Jóhannsson hefur verið ráðinn forstjóri Securitas. Hann hefur starfað sem fjármálastjóri Securitas frá 2021 og verið starfandi forstjóri frá því að Ómar Svavarsson lét af störfum síðastliðinn febrúar

Jóhann Gunnar Jóhannsson hefur verið ráðinn forstjóri Securitas. Hann hefur starfað sem fjármálastjóri Securitas frá 2021 og verið starfandi forstjóri frá því að Ómar Svavarsson lét af störfum síðastliðinn febrúar.

Í tilkynningu kemur fram að Jóhann Gunnar hefur áður starfað sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Isavia, framkvæmdastjóri fjármála- og mannauðssviðs Ölgerðarinnar og sem aðstoðarforstjóri Icelandic Group. Jóhann er löggiltur endurskoðandi og viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands.