Ole Anton Bieltvedt
Ole Anton Bieltvedt
Forseti Íslands hefur ekki mikil bein völd. Hann er fulltrúi og ásýnd Íslands og Íslendinga gagnvart umheiminum, hann er sameiningartákn Íslendinga.

Ole Anton Bieltvedt

Fyrir mér þyrfti nýr forseti að falla sem best að eftirfarandi kjörmynd:

Forsetinn verður að vera þjóðlegur – sannur Íslendingur – og alþjóðlegur í senn. Umhverfis- og náttúruverndarsinni. Með tandurhreinan bakgrunn, flekklaust einkalíf, fallega fjölskyldumynd, mikla og góða menntun og reynslu að sama skapi. Frjáls og hlutlaus, ekki flæktur í stjórnmálavafstur og með víðan sjóndeildarhring, jafnt á íslensk málefni sem alþjóðleg. Hann verður að hafa alþýðlegt en tígulegt fas. Bera sig vel, hafa látlausa en kraftmikla útgeislun, góða áru, standa skær meðal annarra fyrirmenna.

Á FB-síðu sinni kynnir Halla Hrund Logadóttir sinn persónulega bakgrunn svona:

„Ég býð mig fram til embættis forseta Íslands sem fulltrúi almennings, fulltrúi fólksins í landinu. Ég ólst upp í blokk í Árbænum og varði öllum skólafríum í sveitinni austur á Síðu hjá ömmu og afa. Ég ólst upp við þau gildi að mikilvægt væri að leggja sig fram, trúa á það góða í fólki og að allt væri hægt. Í embætti forseta Íslands vil ég halda þessum gildum á lofti og leggja áherslu á samstöðu okkar sem þjóðar, náttúru okkar, menningu og hugvit – fyrir framtíðina.“

Ferill frambjóðenda er auðvitað líka feikimikilvægur, þegar frambjóðendur eru skoðaðir og metnir.

Hér er ferill Höllu Hrundar í grófum dráttum:

Halla Hrund fæddist í Reykjavík 12. mars 1981. Eiginmaður hennar er Kristján Freyr Kristjánsson, framkvæmdastjóri og meðstofnandi hugbúnaðarfyrirtækisins 50skills. Þau eiga tvær dætur, Hildi Kristínu, 11 ára, og Sögu Friðgerði, 4 ára.

Halla Hrund er með BA-gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands, meistaragráðu í alþjóðasamvinnu með áherslu á hagfræði og orkumál frá The Fletcher School við Tufts-háskóla, og meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu frá Harvard-háskóla með áherslu á umhverfis- og orkumál.

Halla Hrund var skipuð orkumálastjóri árið 2021, fyrst kvenna. Hún starfar jafnframt sem aðjúnkt við Harvard þar sem hún kennir á meistarastigi. Frá árinu 2017 hafði hún starfað sem meðstofnandi og framkvæmdastjóri við miðstöð norðurslóða, Arctic Initiative, við Harvard. Árið 2019 var Halla Hrund valin Young Global Leader og kom hún að kortlagningu breytingaþátta norðurslóða á vettvangi World Economic Forum. Frá árinu 2015-2021 vann Halla Hrund að nýsköpunarverkefninu Arctic Innovation Lab í samvinnu við fjölda háskóla og var leiðbeinandi í ýmsum orkutengdum nýsköpunarhröðlum.

Fyrir mér uppfyllir Halla Hrund Logadóttir þá afar krefjandi kjörmynd sem ég dró upp í byrjun vel og á allan hátt. Má sjá nokkur líkindi með henni og Vígdísi.

Þó að forseti Íslands hafi ekki mikil bein völd er hann fulltrúi og ásýnd Íslands og Íslendinga gagnvart umheiminum. Hann er líka sameiningartákn Íslendinga og fulltrúi þjóðarinnar gagnvart Alþingi og framkvæmdarvaldinu. Því verður að vanda val nýs forseta vel.

Hluti af matinu verður að vera hvort vel fari á því að litríkur og umdeildur stjórnmálamaður, kona með blandaðan feril að baki, Katrín Jakobsdóttir, sem skiptar skoðanir eru um – menn sveiflast þar allan skalann – geti orðið sannur fulltrúi þjóðarinnar allrar, þótt góðum gáfum sé gædd og væn kona. Mér er það til efs! Mér virðist hún seint eða aldrei geta orðið sameiningartákn, auk þess sem ég tel skynsamlegast, almennt talað, að halda stjórnmálamönnum frá forsetaembættinu.

Auk Katrínar Jakobsdóttur standa tveir kandídatar efstir á blaði, Baldur Þórhallsson og Jón Gnarr. Báðir á margan hátt fínir menn og frambærilegir en ef þeir eru mátaðir við kjörmyndina hér að ofan flíspassar hvorugur. Eru þar nokkur vanhöld í báðum tilvikum að mínu mati.

Lesandi góður, þú getur sjálfur mátað þinn kandídat við kjörmyndina og ákveðið þig svo. Gerðu þetta vandlega og vel, því eins og þú veist er mikið í húfi.

Heill Höllu Hrund og Íslendingum!

Höfundur er samfélagsrýnir og dýraverndarsinni.