Fljótandi Myndlistarkonan Sigurdís við nokkur olíumálverka sinna.
Fljótandi Myndlistarkonan Sigurdís við nokkur olíumálverka sinna.
Sigurdís Gunnarsdóttir opnar sýningu á nýjum olíumálverkum í Listhúsi Ófeigs á Skólavörðustíg í dag, laugardaginn 20. apríl, kl. 14. Ber hún yfirskriftina Draumsýn. „Olíumálverk Sigurdísar opna veröld draumkennds landslags þar sem ljós og skuggar móta sýn þess sem horfir

Sigurdís Gunnarsdóttir opnar sýningu á nýjum olíumálverkum í Listhúsi Ófeigs á Skólavörðustíg í dag, laugardaginn 20. apríl, kl. 14. Ber hún yfirskriftina Draumsýn.

„Olíumálverk Sigurdísar opna veröld draumkennds landslags þar sem ljós og skuggar móta sýn þess sem horfir. Hér er allt ofurlítið fljótandi í aðferð sem málarinn hefur þróað og tileinkað sér á síðustu árum,“ segir í tilkynningu. Þetta er þriðja einkasýning Sigur­dísar, sem fædd er 1966, en hún hefur að auki tekið þátt í fjölda samsýninga.

Sýningin í Listhúsi Ófeigs verður opin á afgreiðslutíma Gullsmiðju Ófeigs á virkum dögum milli klukkan 10 og 18 og á laugardögum milli klukkan 11 og 16. Hún stendur til 1. maí.