Ný tónleikaröð, Á inniskónum, hefur göngu sína í Hannesarholti í dag, 20. apríl, kl. 20. Þar kemur rapparinn Floni fram ásamt píanóleikaranum Magnúsi Jóhanni Ragnarssyni. Magnús mun sjá um skipulagningu tónlistarviðburða í hverjum mánuði í Hannesarholti
Ný tónleikaröð, Á inniskónum, hefur göngu sína í Hannesarholti í dag, 20. apríl, kl. 20. Þar kemur rapparinn Floni fram ásamt píanóleikaranum Magnúsi Jóhanni Ragnarssyni. Magnús mun sjá um skipulagningu tónlistarviðburða í hverjum mánuði í Hannesarholti. Í tónleikaröðinni Á inniskónum setur Magnús tónlist viðmælenda sinna í nýjan búning með dyggri aðstoð hljóðgervla, trommuheila og hljómborða af ýmsum toga og spyr þá svo spjörunum úr.