Quentin Tarantino
Quentin Tarantino
Quentin Tarantino er hættur við að gera myndina The Movie Critic sem hefði verið hans tíunda mynd en leikstjórinn hefur lengi haldið því fram að hann myndi aðeins gera tíu myndir á ferlinum

Quentin Tarantino er hættur við að gera myndina The Movie Critic sem hefði verið hans tíunda mynd en leikstjórinn hefur lengi haldið því fram að hann myndi aðeins gera tíu myndir á ferlinum. Variety hefur heimildir fyrir því að Tarantino ætli þess í stað að snúa sér að öðru verkefni.

Leikarinn Brad Pitt hafði verið valinn í aðalhlutverk í The Movie Critic og höfðu framleiðendur myndarinnar tryggt 20 milljónir bandaríkjadala í skattafrádrátt í Kaliforníu.