Barnamenningarhátíð verður haldin dagana 23.-28. apríl næstkomandi. Í ár er þema hátíðarinnar lýðræði og verður lögð sérstök áhersla á viðburði sem tengjast lýðræði. Hljómsveitin Celebs mun flytja lagið „Spyrja eftir þér“ fyrir fullum sal barna á…

Barnamenningarhátíð verður haldin dagana 23.-28. apríl næstkomandi. Í ár er þema hátíðarinnar lýðræði og verður lögð sérstök áhersla á viðburði sem tengjast lýðræði. Hljómsveitin Celebs mun flytja lagið „Spyrja eftir þér“ fyrir fullum sal barna á opnun Barnamenningarhátíðar í Eldborgarsal Hörpu á morgun, 23. apríl. Vettvangur hátíðarinnar er borgin öll og verða fjölbreyttir viðburðir á boðstólum fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Frítt er inn á alla viðburði.