Sigurður Ingi Jóhannsson var á 37. flokksþingi Framsóknar endurkjörinn formaður flokksins með rúmlega 96% greiddra atkvæða. Sigurður Ingi hefur verið formaður frá árinu 2016. Flokksþing fór fram á Hilton-hóteli um helgina
Sigurður Ingi Jóhannsson var á 37. flokksþingi Framsóknar endurkjörinn formaður flokksins með rúmlega 96% greiddra atkvæða. Sigurður Ingi hefur verið formaður frá árinu 2016. Flokksþing fór fram á Hilton-hóteli um helgina.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir var endurkjörin varaformaður Framsóknar með tæplega 90% greiddra atkvæða. Hún hefur verið varaformaður frá árinu 2016, að því er kemur fram í tilkynningu. Ásmundur Einar Daðason var endurkjörinn ritari með rúmlega 95% atkvæða. Hann hefur verið ritari Framsóknar frá árinu 2022.