Norður
♠ 932
♥ G103
♦ D87
♣ G972
Vestur
♠ G108
♥ 54
♦ ÁG10
♣ Á8653
Austur
♠ D7654
♥ ÁD86
♦ 43
♣ D10
Suður
♠ ÁK
♥ K972
♦ K9652
♣ K4
Suður spilar 1G redoblað.
„Það var óvenju mikið um fingurbrjóta.“ Óskar ugla hefur setið límdur við tölvuna síðustu daga og fylgst með hinum ríku og frægu spila svokallaða „þverþjóðlega vetrarleika“ í frönsku Ölpunum. „Kannski er það þunna loftið.“
Hér opnaði austur á 1♠ í þriðju hendi og Michal Nowosadzki í suður kom inn á sterku grandi. Vestur doblaði og Nowo redoblaði þegar boltinn kom til hans aftur! Skrýtin sögn, en í skýringum á BBO segir að redoblið lýsi yfir óvissu. Pierre Zimmermann í norður var engu vissari í sinni sök og sagði pass. Spaðagosinn út.
Nowo spilaði tígli á drottningu og hjartagosa úr borði – ásinn upp og tígull í gegnum kónginn. Allt í lagi, svo sem, en svo kom stóra klúðrið: spaðaátta í vestur og drottning í austur?! Stíflaður litur. Vestur fór á taugum í framhaldinu og Nowo fékk yfirslag: 1160.