Nokkur hundruð konur umluktu sænska þingið með risavöxnum handprjónuðum trefli í gær. Konurnar eru loftslagsmótmælendur og þjarma nú að ríkisstjórn landsins að grípa til aðgerða vegna hlýnunar jarðar
Nokkur hundruð konur umluktu sænska þingið með risavöxnum handprjónuðum trefli í gær. Konurnar eru loftslagsmótmælendur og þjarma nú að ríkisstjórn landsins að grípa til aðgerða vegna hlýnunar jarðar.
Konurnar komu saman fyrir utan þinghúsið með trefla sína, en sá stóri er settur saman úr um þrjú þúsund minni treflum. Umkringdu þær svo þinghúsið.