Norður
♠ DG108
♥ K6
♦ 862
♣ 10952
Vestur
♠ Á92
♥ D107
♦ ÁD94
♣ K87
Austur
♠ 76543
♥ 84
♦ G
♣ ÁDG64
Suður
♠ K
♥ ÁG9532
♦ K10753
♣ 3
Suður spilar 5♦ doblaða.
Bandarísku Ásarnir greindu villur í sögnum í þrjá meginflokka: kerfisbrot, yfirmeldingar og einhliða ákvarðanir. Kínverjinn Zheng Jun Shi er saklaus af fyrstu villunni. Hann var í suður og opnaði á 1♥, sem er alveg hárrétt sögn samkvæmt kerfinu.
Spilið er frá þverþjóðlegu vetrarleikunum í frönsku Ölpunum í síðustu viku. Vestur opnunardoblaði 1♥, norður sagði pass og austur stökk í 4♠. Komið að Shi aftur, sem taldi sig eiga erindi upp á fimmta þrep og sagði 5♦, vafalaust til fórnar frekar en sóknar. Dobl og 1100 niður. Hinum megin spilaði austur 4♠ doblaða og slapp einn niður þegar ekki kom út hjarta.
Fimm tígla sögnin telst vera bæði yfirmelding og einhliða ákvörðun – það sem Ásarnir kölluðu „blint stökk fram af hengifluginu án öryggisbúnaðar“.