[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Ari Sigurpálsson, kantmaður Íslands- og bikarmeistara Víkings, var besti leikmaðurinn í þriðju umferð Bestu deildar karla í fótbolta að mati Morgunblaðsins. Ari átti mjög góðan leik og fékk tvö M fyrir frammistöðu sína í fyrrakvöld þegar Víkingur…

Ari Sigurpálsson, kantmaður Íslands- og bikarmeistara Víkings, var besti leikmaðurinn í þriðju umferð Bestu deildar karla í fótbolta að mati Morgunblaðsins.

Ari átti mjög góðan leik og fékk tvö M fyrir frammistöðu sína í fyrrakvöld þegar Víkingur vann Breiðablik á sannfærandi hátt, 4:1, í síðasta leiknum í þriðju umferðinni á Víkingsvellinum.

Hann skoraði fyrsta markið á laglegan hátt eftir sendingu frá Danijel Dejan Djuric og innsiglaði síðan sigurinn með glæsilegum tilþrifum eftir langa sendingu fram völlinn frá Oliver Ekroth.

Ari er 21 árs gamall og uppalinn hjá HK í Kópavogi. Þar lék hann fyrst aðeins 16 ára gamall í efstu deild árið 2019, spilaði þá tvo leiki með HK.

Frá HK til Bologna

Um veturinn fór Ari til Ítalíu og lék með unglingaliði Bologna. Árið eftir, þá 17 ára, skoraði Ari eitt mark í átta leikjum í deildinni ásamt því að skora tvö mörk í bikarleik fyrir HK en gekk síðan alfarið til liðs við Bologna.

Ari sneri aftur til Íslands í ársbyrjun 2022 og gekk þá til liðs við Víking. Hann spilaði alla 27 leiki Víkings í Bestu deildinni og skoraði átta mörk, og varð bikarmeistari með liðinu.

Á sínu öðru tímabili, 2023, missti Ari mikið úr vegna meiðsla en skoraði tvö mörk í 12 leikjum í Bestu deildinni og gerði síðan fjögur mörk í bikarnum, eitt þeirra í úrslitaleiknum en Ari varð Íslands- og bikarmeistari með Víkingi 2023.

Ari hefur leikið með öllum yngri landsliðum Íslands, frá U15 til U21 árs, spilað með þeim 32 leiki og skorað fjögur mörk.

Auk Ara fengu Kyle McLagen úr Fram og FH-ingarnir Björn Daníel Sverrisson og Ástbjörn Þórðarson tvö M í þriðju umferðinni. Þeir eru allir í liði umferðarinnar sem sjá má hér fyrir ofan.

Kyle McLagan er í úrvalsliði umferðar í annað sinn en hann og Viktor Karl Einarsson úr Breiðabliki eru þeir einu sem hafa verið tvisvar í liði umferðarinnar til þessa.