Sigurbjörn Þorkelsson
Sigurbjörn Þorkelsson
Gefðu að kærleikur þinn í hjarta mínu brenni og fái um æðar mínar að flæða svo þú fáir manns hjörtun freðnu að bræða.

Sigurbjörn Þorkelsson

Á ævigöngunni hvort sem það er nú í gleði eða sorg eða bara þegar við mögulega kunnum að sigla einhvern lygnan sjó um stutta stund, þá er það mín reynsla að ekkert sé dýrmætara og betra en að fá að hvíla í mætti og undri andans heilaga og góða og bænarinnar.

Því þótt yfir mig fenni aða ég verði undir fargi vonbrigða og volæðis, þá bið ég þess að kærleikur þinn, góði Jesús, mér bjargi nú og um alla framtíð, líkt og fyrri daginn. Gefðu að kærleikur þinn í hjarta mínu brenni og fái um æðar mínar að flæða svo þú fáir manns hjörtun freðnu að bræða.

Því að þótt í tilverunni frysti, fenni og skafi fáum við einhvern veginn alltaf staðist áhlaupið á svo undraverðan og óskiljanlegan hátt, af því að þú ert ætíð hjá okkur sem þiggja viljum, varðar veginn og ert með í för.

Þú ert okkar helsti lífvörður, þrátt fyrir allar hinar endalausu, óviðunandi, erfiðu og yfirþyrmandi árásir á lífið. Þú sem ert ljós heimsins og lífið sjálft. Þú sem ert skjöldur okkar og eilífðarhnoss, sama hvað kann að henda.

Fyrir það ber að þakka og lofa í auðmjúkri bæn. Dýrð sé Guði og lof sé þér, Jesús Kristur, frelsari heimsins. Himnakaðallinn hvernig sem allt kann að velkjast í henni veröld.

Með einlægasta þakklæti, kærleiks-, friðar- og lífsins kveðju.

Lifi lífið!

Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins.