Rúnar Rúnarsson
Rúnar Rúnarsson
Ljósbrot, nýjasta kvikmynd Rúnars Rúnarssonar, hefur verið valin til sýningar á aðaldagskrá kvikmyndahátíðarinnar í Cannes 2024 sem fram fer 14.-25. maí. „Myndin verður opnunarmynd í Un Certain Regard flokki hátíðarinnar, þar sem kvikmyndum sem sýna …

Ljósbrot, nýjasta kvikmynd Rúnars Rúnarssonar, hefur verið valin til sýningar á aðaldagskrá kvikmyndahátíðarinnar í Cannes 2024 sem fram fer 14.-25. maí. „Myndin verður opnunarmynd í Un Certain Regard flokki hátíðarinnar, þar sem kvikmyndum sem sýna listræna djörfung er hampað,“ segir í tilkynningu frá Kvikmyndamiðstöð Íslands. „Það var heill her af hæfi­leika­ríku fólki sem gerði Ljósbrot að veru­leika með dugnaði sín­um og elju. Ég á ekki til orð til að lýsa því hvað ég er stolt­ur af okkur að hafa náð þessum áfanga,“ er haft eftir Rúnari í tilkynningunni. Þar kemur fram að Ljósbrot gerist á fallegum vordegi þegar líf Unu snýst á hliðina á svipstundu. Upphefst þá rússíbanaferð tilfinninga, þar sem mörkin milli hláturs og gráts, fegurðar og sorgar, verða stundum óskýr. Með aðalhlutverk í myndinni fer Elín Hall.