Knattspyrnumaðurinn Hallgrímur Mar Steingrímsson gæti snúið aftur á völlinn um miðjan næsta mánuð en hann er samningsbundinn KA í Bestu deildinni. Þetta tilkynnti hann í samtali við Morgunblaðið en Hallgrímur, sem er 33 ára gamall, hefur ekkert leikið með KA í fyrstu þremur umferðum Íslandsmótsins
Knattspyrnumaðurinn Hallgrímur Mar Steingrímsson gæti snúið aftur á völlinn um miðjan næsta mánuð en hann er samningsbundinn KA í Bestu deildinni. Þetta tilkynnti hann í samtali við Morgunblaðið en Hallgrímur, sem er 33 ára gamall, hefur ekkert leikið með KA í fyrstu þremur umferðum Íslandsmótsins. Fram að því hafði hann ekki misst úr leik með liðinu í efstu deild frá byrjun tímabilsins 2017 en hann hóf æfingar með KA í gær.