Anna Kristín er nýr framkvæmdastjóri hjá atNorth.
Anna Kristín er nýr framkvæmdastjóri hjá atNorth.
Anna Kristín Pálsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri þróunar og nýsköpunar (e. CDO, Chief Development Officer) gagnavers- og ofurtölvufyrirtækisins atNorth. Hún hefur þegar hafið störf hjá fyrirtækinu

Anna Kristín Pálsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri þróunar og nýsköpunar (e. CDO, Chief Development Officer) gagnavers- og ofurtölvufyrirtækisins atNorth. Hún hefur þegar hafið störf hjá fyrirtækinu. Í tilkynningu kemur fram að Anna mun leiða vinnu við staðarval, hönnun og afhendingu nýrra gagnavera félagsins á Norðurlöndum.

Anna Kristín kemur til atNorth frá Marel þar sem hún hefur starfað frá árinu 2015. Hjá Marel gegndi hún ýmsum störfum, bæði í Evrópu og Norður- Ameríku. Síðast sem framkvæmdastjóri nýsköpunar samhliða því að leiða sölu- og þjónustustarfsemi félagsins sem framkvæmdastjóri Marel í Norður-Ameríku.