Nú eru fleiri frægir en nokkurntíma fyrr í veraldarsögunni. Og þá langar enn fleiri að verða frægir. Sumir orða það þannig að þeir vilji „geta sér frægðar“

Nú eru fleiri frægir en nokkurntíma fyrr í veraldarsögunni. Og þá langar enn fleiri að verða frægir. Sumir orða það þannig að þeir vilji „geta sér frægðar“. Venjan er þó að geta sér frægð. Einnig er hægt að geta sér frægðarorð. Svo má geta sér orðstír. En auðvitað afla sér bæði frægðar og orðstírs.