Balingen Oddur Gretarsson hefur leikið með Balingen frá árinu 2017.
Balingen Oddur Gretarsson hefur leikið með Balingen frá árinu 2017. — Ljósmynd/Balingen
Handknattleiksþjálfarinn Jens Bürkle hefur verið rekinn frá þýska félaginu Balingen. Balingen hefur gengið illa í efstu deild þýska handboltans í ár en liðið er í neðsta sæti deildarinnar með 11 stig, átta stigum frá öruggu sæti

Handknattleiksþjálfarinn Jens Bürkle hefur verið rekinn frá þýska félaginu Balingen. Balingen hefur gengið illa í efstu deild þýska handboltans í ár en liðið er í neðsta sæti deildarinnar með 11 stig, átta stigum frá öruggu sæti. Til stóð að Bürkle myndi hætta eftir tímabilið en vegna slæms gengis var honum sagt upp í gær. Daníel Þór Ingason og Oddur Gretarsson leika með Balingen en sá síðarnefndi gengur til liðs við Þór Akureyri í sumar.