Knattspyrnudeild Vestra hefur gengið frá lánssamningi við sóknarmanninn Johannes Selvén en hann kemur til félagsins frá OB í Danmörku. Selvén kom til OB frá Gautaborg í heimalandinu fyrir síðasta sumar
Knattspyrnudeild Vestra hefur gengið frá lánssamningi við sóknarmanninn Johannes Selvén en hann kemur til félagsins frá OB í Danmörku. Selvén kom til OB frá Gautaborg í heimalandinu fyrir síðasta sumar. Hann skoraði eitt mark í níu leikjum í dönsku úrvalsdeildinni á leiktíðinni en hefur verið utan hóps hjá liðinu í síðustu leikjum. Vestri er með þrjú stig eftir þrjár umferðir í Bestu deildinni en liðið nældi í fyrsta sigurinn með 1:0-útisigri á KA á sunnudag.