Knattspyrnumaðurinn Kristian Nökkvi Hlynsson, leikmaður hollenska stórliðsins Ajax, meiddist í upphitun fyrir leik gegn Twente í hollensku efstu deildinni um þarsíðustu helgi. Kristian hefur verið í stóru hlutverki hjá Ajax á tímabilinu en því gæti nú verið lokið
Knattspyrnumaðurinn Kristian Nökkvi Hlynsson, leikmaður hollenska stórliðsins Ajax, meiddist í upphitun fyrir leik gegn Twente í hollensku efstu deildinni um þarsíðustu helgi. Kristian hefur verið í stóru hlutverki hjá Ajax á tímabilinu en því gæti nú verið lokið. „Kristian heltist úr lestinni í upphitun gegn Twente. Hann mun glíma við þau meiðsli í nokkrar vikur,“ sagði John van‘t Schip, knattspyrnustjóri Ajax, í samtali við heimasíðu félagsins.