Eva Björk Davíðsdóttir, landsliðskona í handknattleik, hefur skrifað undir nýjan samning við Stjörnuna, sem gildir til sumarsins 2026. Eva Björk er 29 ára leikstjórnandi sem hefur leikið með Stjörnunni frá árinu 2020 en hún ólst upp hjá Gróttu og varð þar Íslandsmeistari árin 2015 og 2016.