Breiðholtsbrautin Tölvumynd af nýju göngunum sem vinna er hafin við.
Breiðholtsbrautin Tölvumynd af nýju göngunum sem vinna er hafin við.
Vegna vinnu við ný göng undir Breiðholtsbraut við Suðurfell/Jaðarsel verður umferð bíla færð á hjáleið til hliðar við framkvæmdasvæðið. Umferð gangandi færist á hjáleið um gatnamót Breiðholtsbrautar og Jaðarsels

Vegna vinnu við ný göng undir Breiðholtsbraut við Suðurfell/Jaðarsel verður umferð bíla færð á hjáleið til hliðar við framkvæmdasvæðið. Umferð gangandi færist á hjáleið um gatnamót Breiðholtsbrautar og Jaðarsels. Tekur þetta gildi frá og með morgundeginum.

Fram kemur á heimasíðu Vegagerðarinnar að nýju undirgöngin eru hluti af verkinu Breikkun Breiðholtsbrautar sem unnið er að í tengslum við gerð 3. áfanga Arnarnesvegar. Þau verða 6,5 metra breið, 3,0 metra há og 26 metra löng með aðskildum göngu- og hjólaleiðum. Undirgöngin leysa af hólmi eldri göng undir Breiðholtsbraut sem eru á móts við Völvufell. Þau voru byggð 1993 og uppfylla ekki þá staðla sem nú er miðað við fyrir samgöngumannvirki þessarar gerðar, auk þess að ná ekki undir fyrirhugaða breikkun vegarins.

Úti og Inni Arkitektar og Verkís verkfræðistofa hönnuðu undirgöngin í samstarfi við Vegagerðina og Reykjavíkurborg.

Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Reykjavíkur, Kópavogs, Betri samgangna ohf., Veitna og Mílu. Verktakar eru Loftorka og Suðurverk. sisi@mbl.is