Norður
♠ –
♥ D2
♦ K98543
♣ ÁKD54
Vestur
♠ G102
♥ G106
♦ G1062
♣ 963
Austur
♠ 97654
♥ K8754
♦ 7
♣ G8
Suður
♠ ÁKD83
♥ Á93
♦ ÁD
♣ 1072
Suður spilar 7G.
Horfandi á gosa-tíu í þremur litum ákvað Pierre Zimmermann að spila „öruggt“ út í laufi frá þremur hundum. Reynar kom aldrei til greina að spila út tígli eða spaða – norður hafði sýnt láglitina og eyðu í spaða – en hjartagosinn var möguleiki.
Spilið er frá undanúrslitaleik Zimmermanns og ítölsku stórsveitarinnar BICI (Versace, Sementa, Cima, Duboin, Bianchi) á evrópsku vetrarleikunum. Á hinu borðinu vann suður 6G slétt með hjartagosa út. En eftir laufútspilið náði Antonio Sementa að byggja hálitaþvingun á austur. Hann kannaði tígulinn, tók þrjá efstu í spaða og renndi laufunum. Austur var varnarlaus með spaðavaldið og hjartakóng.
Þrátt fyrir þetta högg vann Zimmermann leikinn naumlega (117-114) og burstaði svo blandaða sveit Nikos í úrslitaleiknum. Með Zimmermann spiluðu Brink, Drijver, Klukowski, Kalita og Nowosadzki.