Viðeyjarsund Skemmtiferðaskipið Norwegian Prima siglir hér að Skarfabakka á síðasta ári. Litlu munaði að illa færi að kvöldi 26. maí 2023.
Viðeyjarsund Skemmtiferðaskipið Norwegian Prima siglir hér að Skarfabakka á síðasta ári. Litlu munaði að illa færi að kvöldi 26. maí 2023. — Morgunblaðið/sisi
Alvarlegt sjóatvik varð skammt frá Viðey skömmu eftir að stórt skemmtiferðaskip með fimm þúsund manns innanborðs fór úr höfn í Reykjavík 26. maí árið 2023. Skipið sem um ræðir heitir Norwegian Prima og siglir undir flaggi Bahama

Viðar Guðjónsson

vidar@mbl.is

Alvarlegt sjóatvik varð skammt frá Viðey skömmu eftir að stórt skemmtiferðaskip með fimm þúsund manns innanborðs fór úr höfn í Reykjavík 26. maí árið 2023.

Skipið sem um ræðir heitir Norwegian Prima og siglir undir flaggi Bahama. Í skýrslu rannsóknarnefndar sjóslysa segir að stífur 50 hnúta vindur hafi gert það að verkum að stjórnendur skipsins misstu tímabundið stjórn á því.

Í framhaldinu rak skipið yfir bauju og mesta mildi þykir að hún hafi ekki farið í skrúfur þess. Baujan heitir Hjallaskersbauja og ef keðjur hennar hefðu farið í skrúfur skipsins eru allar líkur á því að það hefði misst frekari stjórn. Í framhaldinu rak skipið áfram og fór innan við tíu metra frá grynningum við Viðey. Grynningum þar sem sjávardýpt er einungis 0,4 metrar ef miðað er við stórstraumsfjöru. Atvikið átti sér stað um kl. 22:30 og allar líkur á því að skipið hefði strandað ef ekki hefði tekist að ná stjórn á því.

Norwegian Prima komst óskemmt frá atvikinu. Hins vegar urðu smávægilegar skemmdir á dráttarbátnum Magna sem gegndi hlutverki við að ýta skipinu frá grynningum.

Tilkynntu ekki atvikið

Fram kemur í skýrslunni að atvikið hafi hvorki verið tilkynnt til Landhelgisgæslunnar né yfirvalda á Bahama. Rannsókn hófst hins vegar að frumkvæði íslenskra yfirvalda og var yfirvöldum í Bahama boðið að taka þátt í rannsókninni, sem þau þáðu.

Eins segir að Faxaflóahafnir hafi lækkað veðurviðmið sín eftir atvikið en skipið, líkt og mörg önnur skemmtiferðaskip, liggur hátt og tók á sig mikinn vind þennan dag.

Í niðurstöðum rannsóknarnefndarinnar kemur fram stjórnendur skipsins hafi búist við vindhraða upp á 25 hnúta en hann reyndist nær 50 hnútum þegar atvikið átti sér stað. Hafnsögumaður hafði uppi efasemdir um að rétt væri að sigla úr höfn við þessar aðstæður. Hann leit hins vegar svo á að hann hefði ekki vald til þess að fara gegn ákvörðun skipstjóra um að halda af stað. Er talið að skipstjórinn hafi ekki áttað sig á alvarleika málsins.

Höf.: Viðar Guðjónsson