Leikarinn Zac Efron hefur lagt blessun sína yfir ástarsamband ofurparsins Taylor Swift og Travis Kelce. Lýsir hann sambandi þeirra sem High School Musical-ævintýri sem nú sé orðið að veruleika. Efron fór eftirminnilega með eitt af aðalhlutverkunum í …

Leikarinn Zac Efron hefur lagt blessun sína yfir ástarsamband ofurparsins Taylor Swift og Travis Kelce. Lýsir hann sambandi þeirra sem High School Musical-ævintýri sem nú sé orðið að veruleika. Efron fór eftirminnilega með eitt af aðalhlutverkunum í High School Musical og sló heldur betur í gegn á þeim tíma sem körfuboltastjarnan Troy Bolton. Hann segir ástarsamband Swift og Kelce minna á ástarsögu Boltons og Gabriellu Montez en leikkonan Vanessa Hudgens fór með hlutverk Montez í myndunum. Lestu meira á K100.is.