Eitt verka Hönnu.
Eitt verka Hönnu.
Eiginleikar nefnist sýning sem Hanna Dís Whitehead hefur opnað í Listasal Mosfellsbæjar. Í tilkynningu segir að á sýningunni sé leikið með ólíka eiginleika efniviða, forma og hluta

Eiginleikar nefnist sýning sem Hanna Dís Whitehead hefur opnað í Listasal Mosfellsbæjar. Í tilkynningu segir að á sýningunni sé leikið með ólíka eiginleika efniviða, forma og hluta.

„Þegar við búum okkur heimili mótum við veggi, gólf og loft í rýminu í landslagi sem okkur líkar. Við fyllum það af litum, áferðum, formum og minningum. Húsnæðið þarf auk þess að hafa nokkurt notagildi, til að mynda þarf að vera hægt að setjast þar niður, elda mat og sofa. Við þurfum líka rými fyrir hugann og flest kjósum við að heimilið sé staður fyrir hjartað og sálina. Heimili okkar getur verið nákvæmlega eins og okkur dettur í hug,“ segir jafnframt í kynningartexta.

Sýningin, sem er hluti af HönnunarMars í ár, stendur til 17. maí.