Dóra Ósk Halldórsdóttir
doraosk@mbl.is
„Það var mikill heiður að fá Morgunblaðsskeifuna og kom mér á óvart,“ sagði Sunna Lind Sigurjónsdóttir frá Efstu-Grund undir Eyjafjöllum, sem hlaut Morgunblaðsskeifuna í gær við hátíðlega athöfn í hestamiðstöð Landbúnaðarháskólans á Mið-Fossum, en forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson afhenti henni skeifuna.
Morgunblaðsskeifan er veitt þeim nemanda skólans sem náð hefur bestum samanlögðum árangri í áfanganum reiðmennsku III og í frumtamningarprófi og er þetta í 68. sinn sem Morgunblaðið veitir þessi eftirsóttu verðlaun, sem voru fyrst veitt árið 1958. Í öðru og þriðja sæti voru Jessinia Wallach og Bragi Geir Bjarnason. Eiðfaxabikarinn og ásetuverðlaunin í ár hlaut Jessinia Wallach. Framfaraverðlaun Reynis hlutu tveir keppendur, þau Heiðrún Hrund Sigurðardóttir og Jón Halldór Torfason. Gunnarsbikarinn hlaut síðan Sunna Lind Sigurjónsdóttir og Kveikur frá Efstu-Grund, en í öðru sæti var Hildur Ósk Þórsdóttir og Sindri frá Hrísdal og þriðja sæti Jessinia Wallach og Fláki frá Giljahlíð.
Alin upp á hestbaki
Sunna Lind var efst í reiðmennsku III á hestinum Kveik frá Efstu-Grund, en í frumtamningarprófinu var hún að temja Petru frá Ytri-Skógum. „Það gekk ótrúlega vel með Petru eftir að ég var búin að ná trausti hennar, en hún var svolítið smeyk fyrst, eins og oft er fyrst með trippin. Ég vil þakka eigendum og ræktendum fyrir, og svo fékk ég góð ráð líka frá vinum mínum á Hvanneyri. Síðan skipta hestarnir höfuðmáli til þess að ná svona góðum árangri. Kveikur er frábær reiðhestur og síðan er Petra mikið gæðingsefni,“ segir Sunna Lind, sem stefnir á að halda tamningum áfram í sumar eftir lokaprófin og fara síðan í framhaldsnám í búvísindum.
Sunna Lind segir að hestamennskan sé sitt líf og yndi. „Ég er náttúrulega eiginlega alin upp á hestbaki,“ segir hún og segir að eftir hátíðlega verðlaunaafhendinguna í gær hafi hún farið heim til Efstu-Grundar og beint í hesthúsið, að sjálfsögðu.