Árni Reynir Óskarsson fæddist 21. janúar 1934. Hann lést 18. mars 2024.

Útförin fór fram 26. mars 2024.

Elsku afi.

Eins sárt og mér þykir að sjá þig fara yfir í sumarlandið þá finn ég fyrir þakklæti á sama tíma, þakklæti fyrir öll árin sem við áttum saman og allar minningarnar sem ég á með þér. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið tækifæri til að eyða meiri tíma með þér þegar ég flutti norður, fyrst sem barn, þegar við nafnarnir rúntuðum saman um sveitirnar og þú sagðir mér sögur úr þinni bernsku, fórum í girðingavinnu og í hesthúsið að gefa og svo aftur þegar ég var orðinn fullorðinn og sjálfur búinn að eignast son sem bjó svo vel að fá að kynnast þér og þínum einstaka, hlýja persónuleika.

Ég er stoltur af að vera alnafni þinn og mun gera mitt allra besta til að fylgja þínum góðu gildum út mína ævi.

Takk fyrir allt afi minn, þangað til næst.

Árni Reynir Óskarsson.