Forsætisráðuneytið hefur tímabundið ráðið Gylfa Þór Þorsteinsson, teymisstjóra hjá Rauða krossinum, til að leiða samhæfingu vegna Grindavíkur. Mun hann meðal annars samhæfa samskipti og upplýsingagjöf til Grindvíkinga vegna jarðhræringa á Reykjanesi
Forsætisráðuneytið hefur tímabundið ráðið Gylfa Þór Þorsteinsson, teymisstjóra hjá Rauða krossinum, til að leiða samhæfingu vegna Grindavíkur. Mun hann meðal annars samhæfa samskipti og upplýsingagjöf til Grindvíkinga vegna jarðhræringa á Reykjanesi.
Gylfi Þór hefur reynslu af flóknum og umfangsmiklum verkefnum, segir ráðuneytið. Þar megi nefna móttöku flóttafólks frá Úkraínu og uppsetningu og rekstur farsóttarhúsa á tímum covid auk annarra starfa fyrir Rauða krossinn.