Jana Falsdóttir, leikmaður Njarðvíkur í körfuknattleik, gengur til liðs við Cal State Fullerton í háskólaboltanum í Bandaríkjunum að yfirstandandi tímabili loknu. Jana er aðeins 18 ára gömul en býr þrátt fyrir það yfir mikilli reynslu þar sem hún…
Jana Falsdóttir, leikmaður Njarðvíkur í körfuknattleik, gengur til liðs við Cal State Fullerton í háskólaboltanum í Bandaríkjunum að yfirstandandi tímabili loknu. Jana er aðeins 18 ára gömul en býr þrátt fyrir það yfir mikilli reynslu þar sem hún hefur ásamt Njarðvík leikið með meistaraflokkum Hauka og Stjörnunnar eftir að hafa leikið með yngri flokkum Keflavíkur. Hún lék fyrsta landsleikinn gegn Tyrklandi 12. nóvember síðastliðinn.