Enska knattspyrnufélagið Liverpool og Feyenoord frá Hollandi hafa komist að samkomulagi þess efnis að knattspyrnustjórinn Arne Slot megi taka við Liverpool af Jürgen Klopp í sumar. The Athletic greindi frá í gær að Feyenoord hefði samþykkt nýjasta tilboð Liverpool í hollenska stjórann
Enska knattspyrnufélagið Liverpool og Feyenoord frá Hollandi hafa komist að samkomulagi þess efnis að knattspyrnustjórinn Arne Slot megi taka við Liverpool af Jürgen Klopp í sumar. The Athletic greindi frá í gær að Feyenoord hefði samþykkt nýjasta tilboð Liverpool í hollenska stjórann.
Slot hefur sjálfur viðurkennt að hann hafi mikinn áhuga á starfinu og nú er allt að verða klappað og klárt.