Þuríður Jóhanna Kristjánsdóttir fæddist 28. apríl 1927 á Steinum í Stafholtstungum í Borgarfirði. Foreldrar hennar voru hjónin Kristján Franklín Björnsson, f. 1884, d. 1962, og Jónína Rannveig Oddsdóttir, f

Þuríður Jóhanna Kristjánsdóttir fæddist 28. apríl 1927 á Steinum í Stafholtstungum í Borgarfirði. Foreldrar hennar voru hjónin Kristján Franklín Björnsson, f. 1884, d. 1962, og Jónína Rannveig Oddsdóttir, f. 1890, d. 1986.

Þuríður tók kennarapróf frá Kennaraskóla Íslands árið 1948 og var síðar við nám í Kennaraháskólanum í Kaupmannahöfn og Cambridge-háskóla þar sem hún las aðferðafræði og tölfræði. Hún kenndi í Stykkishólmi, við Skógaskóla undir Eyjafjöllum og við Hagaskóla. Árið 1967 fékk Þuríður Fulbright-styrk til náms í Bandaríkjunum. Hún lauk BSc-prófi frá ríkisháskóla Illinois í Urbana 1968, meistaraprófi 1969 og doktorsprófi í menntasálarfræði 1971.

Hún varð kennari við nýstofnaðan Kennaraháskóla Íslands 1971 og fyrsti prófessorinn við skólann 1973. Hún var jafnframt konrektor í nokkur ár. Þuríður lét af störfum 1989.

Auk fræðistarfa í fagi sínu vann Þuríður að þýðingum og fékkst við ljóðagerð. Eftir að hún hætti að kenna vann Þuríður ötullega að útgáfu Borgfirskra æviskráa og voru sjö síðustu bindin undir hennar ritstjórn.

Þuríður lést 18. apríl 2018.