— Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Veðrið hefur leikið við íbúa höfuðborgarsvæðisins síðustu daga og margir hafa nýtt þá til útiveru. Stóri plokkdagurinn var í gær og létu margir til sín taka á þeim vettvangi. Þá var víða tekið til í görðum, tré klippt og hugað að fleiri vorverkum

Veðrið hefur leikið við íbúa höfuðborgarsvæðisins síðustu daga og margir hafa nýtt þá til útiveru. Stóri plokkdagurinn var í gær og létu margir til sín taka á þeim vettvangi. Þá var víða tekið til í görðum, tré klippt og hugað að fleiri vorverkum. Í miðbæ Reykjavíkur var nóg af fólki sem naut þess að sitja og njóta veitinga fyrir utan kaffihús og bari. Hjólabrettafólk lék svo listir sínar neðst á Laugavegi. Svipuðu veðri er spáð næstu daga en um miðja vikuna á að fara að rigna. » 2