[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Ný könnun sem Gallup framkvæmdi fyrir Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) leiðir í ljós að íslenskir neytendur eru óvenjuduglegir að færa viðskipti sín á milli fjármálafyrirtækja. Gallup bar saman hreyfanleika neytenda á fjármálamarkaði á…

Viðtal

Ásgeir Ingvarsson

ai@mbl.is

Ný könnun sem Gallup framkvæmdi fyrir Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) leiðir í ljós að íslenskir neytendur eru óvenjuduglegir að færa viðskipti sín á milli fjármálafyrirtækja.

Gallup bar saman hreyfanleika neytenda á fjármálamarkaði á Íslandi og hjá aðildarríkjum Evrópusambandsins (ESB) og kom í ljós að mun hærra hlutfall Íslendinga hefur á undanförnum fimm árum fært greiðslukorta-, sparnaðarreikninga- og húsnæðislánaviðskipti sín á milli þjónustuaðila.

Ingvar Haraldsson, greininga- og samskiptastjóri SFF, segir um verulegan mun að ræða en sem dæmi höfðu 17% íslenskra svarenda fært húsnæðislán sín á milli fjármálastofnana sem er meira en tvöfalt hærra hlutfall en hjá næsta landi á listanum þar sem 8% höfðu fært lánaviðskipti sín.

Þegar heildarhlutföllin eru skoðuð hafa 48% Íslendinga fært viðskipti sín, og er það hærra hlutfall en hjá nokkru ESB-landi, en sem dæmi mældist hlutfallið 38% í Svíþjóð, 32% í Danmörku og 27% í Lúxemborg. Lægst er hlutfallið í Belgíu þar sem hreyfing viðskiptavina á milli fjármálafyrirtækja mælist aðeins 21%.

Orðið mun auðveldara fyrir neytendur að færa sig til

Ingvar segir niðurstöðurnar bæði áhugaverðar og óvæntar en að þær endurspegli hvernig íslenskum neytendum hefur verið gert auðveldara að flytja sig á milli þjónustuaðila. „Á undanförnum tíu til fimmtán árum hefur margt verið gert til að draga úr kostnaði neytenda við að skipta um banka og lánveitanda. Þá hafa nýir aðilar komið inn á markaðinn og náð að laða til sín viðskiptavini. Tækniframfarir koma líka við sögu enda þarf t.d. ekki í dag að starfrækja útibú í næsta nágrenni við neytendur til að geta veitt þeim fjármálaþjónustu og með rafrænum skilríkjum getur fólk m.a. stofnað reikning hjá hvaða banka sem er í gegnum heimabanka eða snjallsímaforrit, hvar sem er á landinu.“

Ingvar bendir jafnframt á að breytingar á lagaumgjörð húsnæðislána hafi vafalítið komið hreyfingu á markaðinn og margir valið að skipta úr hefðbundnum 40 ára verðtryggðum jafngreiðslulánum yfir í óverðtryggð lán með ýmist breytilegum eða föstum vöxtum. Þá hafi reglum um stimpilgjöld verið breytt svo að ódýrara varð að skuldbreyta húsnæðislánum, og loks komu lífeyrissjóðirnir af auknum krafti inn á þennan hluta fjármálamarkaðarins. „Enn fremur hafa komið til sögunnar samanburðar-
vefsíður sem gera neytendum auðvelt að fylgjast með hver býður bestu kjörin hverju sinni, og stundum þarf ekki nema nokkra smelli í snjallsímanum til að færa viðskiptin þangað sem bestu kjörin fást.“

Er þetta annað en neytendur í mörgum öðrum Evrópulöndum eiga að venjast og tekur Ingvar undir að umstangið og kostnaðurinn hafi oft komið Íslendingum á óvart ef þeir hafa þurft að stofna til bankaviðskipta í álfunni og t.d. rekið sig á að sums staðar þarf hreinlega að borga fyrir að stofna bankareikning.

Veitir fjármálageiranum heilmikið aðhald

Að mati Ingvars eru niðurstöður könnunarinnar til marks um það að íslensk fjármálafyrirtæki þurfi að vera á tánum og ljóst að allstór hluti neytenda hiki ekki við að flytja viðskipti sín annað. „Þetta er til marks um heilbrigðan og fjölbreyttan markað með virka samkeppni, og rétt að minna á þá staðreynd að hjá þessari tæplega 400.000 manna þjóð er hægt að stofna innlánsreikning hjá níu ólíkum fjármálafyrirtækjum,“ segir hann.

Þessi mikla og virka samkeppni virðist ekki hafa bitnað á rekstrarárangri fjármálafyrirtækja sem flest hver þykja hafa skilað mjög góðu búi að undanförnu. Elstu og stærstu aðilarnir á markaðinum pluma sig ágætlega og nýliðarnir hafa náð flugi. „Samt sjáum við að hreyfanleiki neytenda veitir fjármálageiranum mikið aðhald og sýndi t.d. nýlegt rit Seðlabankans að á Íslandi hafa vextir innlánsreikninga fylgt stýrivöxtum mun betur en á evrusvæðinu og í Noregi og þá hefur vaxtamunur heimilanna einnig lækkað að undanförnu samkvæmt gögnum Seðlabankans.“

Nokkrir smellir

Rafræn skilríki og vaxandi tæknivæðing þýðir að auðvelt er fyrir Íslendinga að t.d. stofna reikning hjá banka hvar og hvenær sem er.

Annars staðar í Evrópu getur ferið flóknara og dýrara að skipta um fjármálafyrirtæki og hefja viðskipti.

Vefsíður hjálpa neytendum að bera saman þau kjör sem eru í boði.