Ný tónleikaröð hefur göngu sína í Hafnartorgi Gallery í kvöld, þriðjudaginn 30. apríl, en þar verða haldnir djasstónleikar annað hvert þriðjudagskvöld. Á fyrstu tónleikum þriðjudagsdjassins kemur fram tríó Rebekku Blöndal en með henni leika Sigurður …

Ný tónleikaröð hefur göngu sína í Hafnartorgi Gallery í kvöld, þriðjudaginn 30. apríl, en þar verða haldnir djasstónleikar annað hvert þriðjudagskvöld.

Á fyrstu tónleikum þriðjudagsdjassins kemur fram tríó Rebekku Blöndal en með henni leika Sigurður Flosason á saxófón og Andrés Þór Gunnlaugsson á gítar. Tríóið mun leika lög eftir Rebekku og Sigurð í bland við góðkunna djassstandarda, segir í kynningartexta. Tónleikarnir hefjast kl. 19.