Samninganefndir Félags flugmálastarfsmanna ríkisins og Sameykis hafa ákveðið að boða til aðgerða á Keflavíkurflugvelli sem felist í yfirvinnu- og þjálfunarbanni „ásamt tímabundnum og tímasettum aðgerðum við öryggisleit og farþegaflutninga…

Samninganefndir Félags flugmálastarfsmanna ríkisins og Sameykis hafa ákveðið að boða til aðgerða á Keflavíkurflugvelli sem felist í yfirvinnu- og þjálfunarbanni „ásamt tímabundnum og tímasettum aðgerðum við öryggisleit og farþegaflutninga eftir að samtöl stéttarfélaganna við Samtök atvinnulífsins fyrir hönd Isavia ohf. reyndust árangurslaus“, eins og segir í tilkynningu. Verði þær samþykktar í atkvæðagreiðslu sem lýkur næsta fimmtudag, hefjast aðgerðirnar síðdegis hinn 9. maí.

Fram kemur að kröfur félaganna snúa fyrst og fremst að því að ná fram samræmingu á réttindum milli gildandi kjarasamninga innan Isavia ohf. og dótturfélaga og leiðréttingu á framkvæmd kjarasamninga frá síðustu samningalotu. Á vef Sameykis er fyrirhuguðum aðgerðum lýst þar sem auglýst er almenn leynileg rafræn atkvæðagreiðsla um boðun yfirvinnubanns og vinnustöðvunar sem mun ná til félagsfólks Sameykis sem starfar hjá Isavia.

Frá kl. 16 fimmtudaginn 9. maí hefst ótímabundið yfirvinnubann. Það nær til alls félagsfólks Sameykis sem starfar hjá Isavia ohf. Frá kl. 16 þann sama dag hefst einnig ótímabundið þjálfunarbann. Þjálfunarbannið tekur til félagsfólks Sameykis sem starfar hjá Isavia ohf. sem leiðbeinendur og vottaðir leiðbeinendur á gólfi.

Starfsfólk sem sinnir öryggisleit á Keflavíkurflugvelli mun svo leggja tímabundið niður störf í fjórar klukkustundir í senn á fjórum dögum, það er að segja á tímabilinu frá kl. 04 til kl. 08 föstudaginn 10. maí, fimmtudaginn 16. maí, föstudaginn 17. maí og mánudaginn 20. maí. omfr@mbl.is