Stjarnan Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir í búningi Stjörnunnar.
Stjarnan Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir í búningi Stjörnunnar. — Ljósmynd/Stjarnan
Handknattleiksmarkvörðurinn Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir hefur samið við Stjörnuna um að leika með liðinu næstu tvö ár, til sumarsins 2026. Gengur hún til liðs við félagið í sumar. Hrafnhildur Anna, sem er 24 ára gömul, hefur leikið með Val…

Handknattleiksmarkvörðurinn Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir hefur samið við Stjörnuna um að leika með liðinu næstu tvö ár, til sumarsins 2026. Gengur hún til liðs við félagið í sumar. Hrafnhildur Anna, sem er 24 ára gömul, hefur leikið með Val undanfarin tvö ár og varð Íslandsmeistari með liðinu á síðasta ári og bikar- og deildarmeistari á þessu ári. Hún er alin upp hjá FH og hóf meistaraflokksferilinn í Hafnarfirðinum.