Valsmenn sáu aldrei til sólar þegar liðið tók á móti Njarðvík í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í körfuknattleik á Hlíðarenda í gær. Leiknum lauk með stórsigri Njarðvíkur, 105:84, og eru Njarðvíkingar komnir í 1:0 í einvíginu

Valsmenn sáu aldrei til sólar þegar liðið tók á móti Njarðvík í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í körfuknattleik á Hlíðarenda í gær. Leiknum lauk með stórsigri Njarðvíkur, 105:84, og eru Njarðvíkingar komnir í 1:0 í einvíginu. Annar leikur liðanna fer fram á föstudaginn í Njarðvík en vinna þarf þrjá leiki til þess að tryggja sér sæti í úrslitaeinvíginu. »26