Línumaður Sveinn Jóhannsson á að baki 12 A-landsleiki fyrir Ísland.
Línumaður Sveinn Jóhannsson á að baki 12 A-landsleiki fyrir Ísland. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Handknattleiksmaðurinn Sveinn Jóhannsson gengur til liðs við norska meistaraliðið Kolstad í sumar. Sveinn, sem er 25 ára gamall, skrifaði undir eins árs samning við norska félagið en hann kemur til félagsins frá þýska B-deildarfélaginu Minden

Handknattleiksmaðurinn Sveinn Jóhannsson gengur til liðs við norska meistaraliðið Kolstad í sumar. Sveinn, sem er 25 ára gamall, skrifaði undir eins árs samning við norska félagið en hann kemur til félagsins frá þýska B-deildarfélaginu Minden. Alls á hann að baki 12 A-landsleiki fyrir Ísland en hjá Kolstad hittir hann fyrir tvo aðra Íslendinga, Sigvalda Björn Guðjónsson og Benedikt Gunnar Óskarsson sem gengur til liðs við félagið frá Val í sumar.