Þórarinn Ingi Pétursson
Þórarinn Ingi Pétursson
Atvinnuveganefnd Alþingis ræddi á fundi sínum í gær hugmyndir um að binda rekstrarleyfi fyrirtækja í sjókvíaeldi við 16 ár. Í frumvarpi um lagareldi hefur ákvæði um ótímabundið rekstrarleyfi fyrirtækja í þessari starfsemi sætt gagnrýni, bæði innan þings og utan

Atvinnuveganefnd Alþingis ræddi á fundi sínum í gær hugmyndir um að binda rekstrarleyfi fyrirtækja í sjókvíaeldi við 16 ár. Í frumvarpi um lagareldi hefur ákvæði um ótímabundið rekstrarleyfi fyrirtækja í þessari starfsemi sætt gagnrýni, bæði innan þings og utan.

Óskaði nefndin eftir tillögum matvælaráðuneytisins um hvernig bregðast mætti við því.

Segist Þórarinn Ingi Pétursson formaður nefndarinnar vera bjartsýnn á að atvinnuveganefnd leggi sig alla fram um að reyna að skapa sem mesta sátt í samfélaginu um lagareldi.

„Við vitum að þjóðin vill ekki sjá að menn séu með ótímabundinn aðgang að auðlindinni og okkar verkefni er að reyna að skapa sem mesta sátt um þetta mál og þetta er einn liðurinn því,“ segir Þórarinn Ingi. » 2