Guðbjörg Sæunn Friðriksdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri lagnafyrirtækisins Sets á Selfossi. Hún tekur við starfinu af Bergsteini Einarssyni, sem mun nú einbeita sér að söluferli fyrirtækisins
Guðbjörg Sæunn Friðriksdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri lagnafyrirtækisins Sets á Selfossi. Hún tekur við starfinu af Bergsteini Einarssyni, sem mun nú einbeita sér að söluferli fyrirtækisins.
Guðbjörg Sæunn starfaði áður sem forstjóri Einingaverksmiðjunnar. Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að Bergsteinn mun verða Guðbjörgu til ráðgjafar eftir því sem óskað verður eftir og mun stýra framleiðslufyrirtækinu Set Pipes GmbH í Þýskalandi fram yfir söluferli félagsins ytra.
Set rekur einnig söluskrifstofu Set Pipes AS í Danmörku.