Hliðarveröld Áhugafólk um vísindaskáldskap ætti að hafa augun á streymisveitunni Apple TV+ frá og með 8. maí en þá hefur göngu sína myndaflokkurinn Dark Matter sem fjallar um eðlisfræðing í Chicago sem hafnar í hliðarveröld eigin lífs
Hliðarveröld Áhugafólk um vísindaskáldskap ætti að hafa augun á streymisveitunni Apple TV+ frá og með 8. maí en þá hefur göngu sína myndaflokkurinn Dark Matter sem fjallar um eðlisfræðing í Chicago sem hafnar í hliðarveröld eigin lífs. Hefst þá æsileg barátta við að snúa aftur í hið eiginlega líf áður en hliðarsjálfið skaðar fjölskylduna. Með helstu hlutverk fara Joel Edgerton og Jennifer Connelly.