Merki þýðir m.a. herfáni sem borinn er í broddi fylkingar þegar lagt er til orrustu. Að svíkjast undan merkjum þýðir þá að gerast liðhlaupi. Að skerast úr leik merkir að hætta þátttöku, bregðast félögum sínum

Merki þýðir m.a. herfáni sem borinn er í broddi fylkingar þegar lagt er til orrustu. Að svíkjast undan merkjum þýðir þá að gerast liðhlaupi. Að skerast úr leik merkir að hætta þátttöku, bregðast félögum sínum. Hvorugt hljómar drengilega, en ekki hljómar blendingurinn „að skerast undan merki“ neitt betur. Látum oss jarða hann.