Akureyri Kamil Pedryc er búinn að semja við KA til tveggja ára.
Akureyri Kamil Pedryc er búinn að semja við KA til tveggja ára. — Ljósmynd/KA
Pólski handknattleiksmaðurinn Kamil Pedryc skrifaði í gær undir tveggja ára samning við KA. Pedryc er 28 ára gamall línumaður og kemur frá Zaglebie Lubin. Áður lék hann með Kalisz og Tarnów í Póllandi og þar á undan með Braunschweig í Þýskalandi

Pólski handknattleiksmaðurinn Kamil Pedryc skrifaði í gær undir tveggja ára samning við KA. Pedryc er 28 ára gamall línumaður og kemur frá Zaglebie Lubin. Áður lék hann með Kalisz og Tarnów í Póllandi og þar á undan með Braunschweig í Þýskalandi. Pedryc er annar leikmaðurinn sem KA fær fyrir næsta tímabil en fyrir skömmu samdi Bjarni Ófeigur Valdimarsson við félagið. Hann hefur leikið með Minden í þýsku B-deildinni í vetur.