Landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir sneri aftur á fótboltavöllinn í gærkvöldi er Wolfsburg vann öruggan 5:1-heimasigur á Köln í efstu deild þýska boltans. Sveindís meiddist á öxl í landsleik Íslands og Þýskalands í síðasta mánuði og var óttast að sóknarkonan yrði lengi frá
Landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir sneri aftur á fótboltavöllinn í gærkvöldi er Wolfsburg vann öruggan 5:1-heimasigur á Köln í efstu deild þýska boltans. Sveindís meiddist á öxl í landsleik Íslands og Þýskalands í síðasta mánuði og var óttast að sóknarkonan yrði lengi frá. Meiðslin voru hins vegar ekki eins slæm og í fyrstu var óttast og kom hún inn á sem varamaður í gær á 58. mínútu. Wolfsburg er í öðru sæti deildarinnar, fjórum stigum á eftir Bayern München