Mark Elijah Adebayo tryggði Luton eitt stig í fallbaráttunni í gær.
Mark Elijah Adebayo tryggði Luton eitt stig í fallbaráttunni í gær. — AFP/Henry Nicholls
Luton Town og Everton skildu jöfn, 1:1, í fyrsta leik 36. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í Luton í gærkvöldi. Jafnteflið breytir litlu um stöðu beggja liða þar sem Everton er áfram í 15

Luton Town og Everton skildu jöfn, 1:1, í fyrsta leik 36. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í Luton í gærkvöldi. Jafnteflið breytir litlu um stöðu beggja liða þar sem Everton er áfram í 15. sæti, nú með 37 stig, og Luton heldur kyrru fyrir í 18. sæti, fallsæti, með 26 stig og lakara markahlutfall en Nottingham Forest í sætinu fyrir ofan. Dominic Calvert-Lewin kom gestunum í forystu um miðjan fyrri hálfleik með marki úr vítaspyrnu. Elijah Adebayo jafnaði hins vegar metin fyrir Luton skömmu síðar, á 31. mínútu.