Sigurbjörn Þorkelsson
Sigurbjörn Þorkelsson
Í augum Guðs ert þú ekki mistök. Ekki einhver lítils verður fánýtur einstaklingur eða eins og hvert annað óhapp, misheppnaður aðskotahlutur eða slys.

Sigurbjörn Þorkelsson

Eitt sinn

varst þú

aðeins draumur.

Fallegur draumur

í huga Guðs.

Draumur

sem rættist.

(Sigurbjörn Þorkelsson)

Í augum Guðs

Í augum Guðs ert þú ekki mistök. Ekki einhver lítils verður fánýtur einstaklingur eða eins og hvert annað óhapp, misheppnaður aðskotahlutur eða slys. Heldur eilífðarverðmæti. Þú ert eins og ljóð sem hann hefur ort og er að yrkja með þér frá degi til dags. Ástarljóð, óður til lífsins. Ljóð sem ætlað er að bera birtu og yl inn í aðstæður þeirra sem á vegi þínum verða. Já, allra þeirra sem þarf að uppörva og herða. Láttu því aldrei líta smáum augum á aldur þinn né uppruna, kynferði né litarhátt, þekkingu eða reynslu.

Enginn er sem þú

Það fer enginn í gegnum ævina eins og þú og það bregst enginn við eins og þú. Enginn grætur eins og þú og enginn brosir og hlær eins og þú. Þú ert einstakt, óviðjafnanlegt eintak. Enginn og ekkert mun koma í þinn stað, því enginn er sem þú. Þú býrð yfir ómetanlegri þekkingu og einstakri reynslu sem þú þarft að miðla í umhverfinu og til komandi kynslóða. Ég hvet þig því að gefa óspart af þér og láta um þig muna því samfélagið þarf á þinni nærveru og rödd að halda. Við þurfum nefnilega hvert á öðru að halda eins ólík og við kunnum að vera, en þó flest líklega með sömu grunnþarfir, þegar allt kemur til alls.

Óður til hinna eldri og reyndari

Þú sem hefur unnið og stritað, þú sem hefur alið upp börn og axlað ábyrgð þjóðfélagsins, greitt þína skatta og skyldur, byggt upp og gefið af þér. Þú sem átt reynslu ævinnar að baki og manst tímana tvenna og jafnvel þrenna. Þú sem kannt sögurnar sem ekki mega þagna og þú sem kannt bænirnar sem ekki mega gleymast. Réttu úr þér og berðu höfuðið með reisn. Þú hefur svo miklu að miðla til komandi kynslóða af sögum, ljóðum og bænum, reynslu, umhyggju og ást. Veröldin væri svo miklu fátækari ef þú hefðir aldrei verið. Fátækari án þinna einstöku upplifana, sem enginn getur miðlað til komandi kynslóða nema þú segir frá með þínum hætti, frá þínu sjónarhorni.

Láttu því engan mann nokkurn tíma líta smáum augum á aldur þinn, þekkingu eða reynslu.

Jesús er Guð þinn,

því aldrei skalt gleyma.

Hann gengur við hlið þér

og leiða þig vill.

Þú eilífa lífið,

átt honum að þakka,

hann sigraði dauðann

og lífið gaf þér.

Guðs son á himni

nú vakir þér yfir.

Hann gleymir ei bæn þinni

hver sem hún er.

Líf mitt sé falið þér

eilífi faðir.

Faðminum þínum ég hvíla vil í.

(Sigurbjörn Þorkelsson)

Með sumarsins uppstigningar kærleiks- og friðarkveðju.

Lifi lífið!

Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins.