Vesturlandsvegur Undirbúningur að nýjum vegi er hafinn, þar sem möl og grjót eru farg svo jarðvegurinn sígur. Umferð hér er mikil og vaxandi.
Vesturlandsvegur Undirbúningur að nýjum vegi er hafinn, þar sem möl og grjót eru farg svo jarðvegurinn sígur. Umferð hér er mikil og vaxandi. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Ekkert liggur fyrir hjá Vegagerðinni um útboð eða framkvæmdir við breikkun hringvegarins frá Vallá á Kjalarnesi að suðurmunna Hvalfjarðarganga. Á sl. ári lauk vinnu við tvöföldun vegarins frá Kollafirði að Vallá

Ekkert liggur fyrir hjá Vegagerðinni um útboð eða framkvæmdir við breikkun hringvegarins frá Vallá á Kjalarnesi að suðurmunna Hvalfjarðarganga.

Á sl. ári lauk vinnu við tvöföldun vegarins frá Kollafirði að Vallá. Sá leggur er 4,1 kílómetri og markaði tilkoma 2+2-vegar þar, auk torga og tengibrauta, mikla og langþráða bót með tilliti til öryggis og greiðara flæðis umferðar, sem þarna er mikil og vaxandi.

Jafnhliða þeirri framkvæmd, sem lauk í fyrra, var framhaldið undirbúið. Möl og grjóti var ekið í nýja veglínu ofan Grundarhverfis svo jarðvegur þar sígur. Við hliðina er núverandi vegur sem áfram nýtist en gert er ráð fyrir að þarna verði tvær akbrautir með umferð í báðar áttir. Vegurinn frá Vallá að göngum verður alls 5,5 km og er þetta samstarfsverkefni Vegagerðar, Reykjavíkurborgar og fleiri. sbs@mbl.is